Safír Harmónía
Safír Harmónía stendur fyrir frágang íbúða þar sem Rut Kára hefur valið saman hönnun, efni og liti sem stuðla að jafnvægi og heildstæðu yfirbragði íbúða. Harmónía er hönnunarlína sem er í boði á hæðum þrjú til sex.
Fimm samsetningar frá Rut Kára
Þau sem tryggja sér íbúð snemma geta valið milli fimm kosta í innréttingarþema Harmóníu.
Skoðaðu úrvalið í Safír Harmónía

Safír Harmónía 1
Eldhús
Innréttingar: Fönn (Nobilia Laser White 419)
Borðplata: steinn – Motion Grey Silestone
Blöndunartæki: Grohe
Tæki: Siemens (iQ300), Elica og Bora
Bað
Innréttingar: Fönn (Nobilia Laser white 419)
Borðplata: steinn – Motion Grey Silestone
Blöndunartæki: Grohe
Salerni: Duravit, vegghengt með innb. vatnskassa
Baðkar: Bette, stál
Þvottahús
Innréttingar: Fönn (Nobilia Laser white 419)
Borðplata: harðplast – Strombolian Light 215
Almennt
Innréttingar: Fönn (Nobilia Laser white 419)
Hurðir: Ebson, yfirfelldar, svört plastfilma með viðaráferð
Vandaðar þýskar innréttingar
Mikil áhersla er lögð á að íbúðir séu búnar vönduðum innréttingum, eldhús- og baðtækjum og eru allar innréttingar sérhannaðar inn í hverja íbúð.
Allar innréttingar koma frá GKS í samvinnu við Nobilia, sem er virtur þýskur framleiðandi og eitt af leiðandi innréttingafyrirtækjum Evrópu. Framkvæmdaraðili hefur áralanga góða reynslu af notkun innréttinga frá GKS og Nobilia.
Innréttingarnar sem urðu fyrir valinu eru framleiddar úr sérlega vönduðu og endingargóðu efni sem er sérstaklega álagsprófað og hefur sannað gildi sitt. Áferð þeirra er einnig afar fáguð, sem gefur hlýju og góða tilfinningu í hverju rými.
Allar eldhús- og baðinnréttingar eru í svokallaðri N-línu, með innfelldum höldum og lýsingu.
Innréttingar og skápar ná upp í loft – og milli veggja þar sem því er komið við. Þær eru innbyggðar í veggi íbúðar sem gefur rýminu aukið vægi og stílhreinna yfirbragð. Allar dyr innan íbúða eru yfirfelldar.
Auðvelt er að bæta við innréttingum eftir þörfum, eins og sjónvarpseiningum, hillum, aukaskápum og fleiru. GKS býður viðskiptavinum Orkureits upp á hátt þjónustustig vegna breytinga og viðhalds.
Búnaður
Eldhúsinnrétting og tæki
Við hönnun íbúða er mikil áhersla lögð á vinnuhagræði í eldhúsinu. Íbúðir eru afhentar með öllum hefðbundnum raftækjum í eldhúsi. Kæliskápar, frystiskápar og uppþvottavélar eru innbyggðar. Íbúðirnar eru búnar vönduðum og glæsilegum tækjum frá Siemens, háfi frá Elica og íbúðir með eyjur eru með innbyggðu spanhelluborði frá Bora. Í helluborðinu er innbyggður gufugleypir og því þarf ekki eyjuháfa.
Gólfefni og hurðar
Gólf á baðherbergi og þvottahúsi eru flísalögð. Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir að mestu en víða er veggur eða hluti veggs skilinn eftir svo hægt sé að mála og fá fram hlýlegra yfirbragð. Að öðru leyti eru íbúðir afhentar án gólfefna en kaupendur geta fengið viðarparket sem Rut Kára hefur valið, eða harðparket lagt á gólf íbúða gegn hóflegu gjaldi. Allar innihurðir eru yfirfelldar í svörtum lit með viðaráferð og svörtum hurðarhúnum, samkvæmt vali innanhússarkitekts.
Bað og þvottaaðstaða
Við hönnun er mikil áhersla lögð á að baðinnréttingin sé rúmgóð og fallega frá gengin með lýsingu. Glæsileg handlaug frá Nicos er innbyggð í innréttingu og vönduð og falleg blöndunartæki fyrir handlaug og sturtu eru svört frá Grohe. Vegghengt salerni með innbyggðum vatnskassa er frá Duravit.
Í mörgum íbúðanna er sér þvottahús, sömuleiðis fallega innréttað og frágengið, en í öðrum er þvottaaðstaða haganlega og smekklega innbyggð í baðinnréttingu.
Skilalýsing
Allar nánari útlistanir á innréttingum, frágangi og búnaði er að finna í skilalýsingum á íbúðasíðum.